Samstarfsráð um forvarnir SAMFO stendur fyrir Vímuvarnaviku sem fyrirhugað er að halda árlega í samvinnu við fjölmörg grasrótarsamtök í landinu. Að SAMFO standa nú; SSB - Samtök skólamanna um bindindisfræðslu, Barnahreyfing IOGT, ÍUT-forvarnasamtök, Ungmennahreyfing IOGT, BRAUTIN, bindindisfélag ökumanna og IOGT á Íslandi.
Forveri SAMFO og samstarfsvettvangur þessara samtaka var áður Samvinnunefnd bindindismanna sem starfaði í tvo áratugi eða frá 1979 til 1999, að nefndin var lögð niður. Auk bindindissamtaka áttu ýmis önnur grasrótarsamtök á Íslandi aðild að Samvinnunefndinni.
SAMFO var stofnað vorið 2003 og er vettvangur samstarfs aðildarfélaga sinna auk þess að beita sér í stefnumörkun í áfengis- og vímuefnamálum, einkum því sem snýr að forvörnum. Samstarfsráðinu er einnig ætlað að stuðla að þátttöku annarra félagasamtaka í forvörnum og móta vettvang fyrir samstarf félagasamtaka að forvörnum. Verkefnið VIKA 43 er gott dæmi um verkefni SAMFO.